|
|
|
Litastjórnun fyrir Offsetprentun
InkZone - forstilling á litagjöf (Preset),
litaborðalesning og mötun (Open Loop / Closed Loop) Þetta kerfi hefur sýnt sig í að borga sig upp á nokkrum mánuðum í flestum tilfellum, bæði hérlendis og erlendis. Hægt er að reikna út hve fljótt fjárfestingin fer að borga sig á fljótlegan og einfaldan hátt en þessi kerfi spara notendum milljónir króna á ári í flestum tilfellum í formi pappírssparnaðar og tímasparnaðar. Við getum boðið íslenskum prentsmiðjum að dreifa greiðslum, þannig að þær geta nýtt sparnaðinn til að greiða stóran hluta af kerfinu jafnóðum. "Við höfum
komist af fram til þessa með handvirkum density mælum og góðum
prenturum..." Ef mikið er að gera þá getur skipt máli hvort það tekur 10 mínútur að stilla farvagjöfina (eftir auganu) - eða eina mínútu (það nákvæmlega að prentun getur hafist þegar formurinn er kominn í register). Ef prentaðir eru 8 formar á dag, þá eru þetta 72 mínútur á dag, eða 10 - 15.000 arkir í prentun. Ef meðalsparnaður pr. form er 50 arkir, þá eru þetta 400 arkir á dag sem sparast. Ef viðskiptavinur gerir kröfu um prentun skv. ISO 12647 staðli þá er í raun ekki hægt að taka slík verkefni að sér nema á prentvél sem er með InkZone kerfinu eða sambærilegu kerfi. "Við erum nú
þegar með forstillingu á litagjöfinni hjá okkur" Aðalhlutverk litaborðalesara er að flýta fyrir að koma jafnvægi á litagjöfina - og svo að lágmarka sveiflur í prentun út rönnið. Spot-Nordic býður bæði upp á svokallaðar "Open Loop" lausn, þar sem litaborðamælirinn skilar einfaldlega niðurstöðu af lestri alls litaborðans upp á skjá á nokkrum sekúndum og prentari getur þá strax séð hvar þarf að laga litagjöfina, - sem og svokallaða "Closed Loop" lausn þar sem hægt er að senda leiðréttingu á litagjöf í öllum litum inn á prentvélina strax að lokinni lesningu. Fyrir prentsmiðjur sem eru farnar að huga að því að fá ISO / PSO vottun á prentunina hjá sér þá ber að geta þess að litaborðalesari er þar eitt af skilyrðunum. InkZone kerfið skiptist í eftirfarandi hluta og er hægt að kaupa þá í skrefum.
DI PLOT: Sér um að búa til CIP4 fæla sem eru síðan sjálfkrafa
sendir á tölvu sem er staðsett við hverja prentvél. Auðvitað er líka hægt að "prenta" PDF til skoðunar og samþykkis til að spara blekið. Hægt er að setja upp CIP4 sendingu inn á eins margar prentvélar og þarf með DI PLOT.
Hér velur prentarinn líka þann pappírsprófíl sem á að nota fyrir viðkomandi verk. Að prentun lokinni getur prentari lesið stöðuna á farvaverkinu til baka inn í IZ Perfect hugbúnaðinn til að fínstilla forstillinguna. Þannig verður hún sífellt betri eftir því sem hún er notuð oftar og staðan uppfærð. Æskilegt er að nota stærri verkefni til að uppfæra IZ Perfect forstillinguna, þ.e. þá er yfirleitt hægt að ná nánast fullkomnu jafnvægi á farvagjöfina.
InkZone Card er dæmi um tengingu fyrir
MAN Roland og Heidelberg prentvélar.
InkZone Card kemur í stað korta sem fylgja prentvélunum - Heidelberg Job Memory Card og á Man Roland vélunum heitir kortið Chipcard. Kortið og PC tölva sem er sett upp á prentvélinni tengjast verkflæðiðinu með Ethernet tengingu Kortið tekur á móti CIP4/JDF fælum frá verkflæðinu um leið og plötur eru keyrðar út. Sambærileg kort eða box eru fáanleg fyrir aðrar tegundir prentvéla, ungar sem aldnar.
InkZone Move + Techkon SpectroJet eða SpectroDrive litaborðamælir: Þessi hugbúnaður "talar við" InkZone Perfect hugbúnaðinn og sækir upplýsingar þangað um það density sem nota á fyrir hvern lit (innbyggt í pappírsprófílinn). Hér þarf svokallaðan litaborðamæli til að lesa litaborðann. Við bjóðum nokkrar gerðir mæla, s.s. TECHKON SpectroJet eða TECHKON SpectroDrive frá þýska framleiðandanum TECHKON. Litaborðamælirinn mælir litaborðann á nokkrum sekúndum og prentari fær alla liti upp á skjá. Prentari getur síðan skrollað í gegnum litina, stillt fyrst það sem er mest út úr og síðan fínstillt þar sem litir eru minna vanstilltir. Á þessu stigi er búið að setja upp svokallað
Offline / Open Loop kerfi sem dugir til að hægt er að byrja að prenta
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum (ISO 12647) - annaðhvort Fogra eða G7
stöðlum og fá vottun frá Fogra eða Idealliance. InkZone Loop (bætist við InkZone Move): Online útgáfa = Closed Loop. Hér er búið að tengja tölvuna með InkZone
Move hugbúnaðinum við prentvélina. Prentari getur valið um að skoða þær breytingar sem hugbúnaðurinn mælir með að séu gerðar - og ýtt síðan á SEND takkann, - eða þá valið að kerfið sendi sjálfkrafa leiðréttingu fyrir alla liti í einu strax að mælingu lokinni án skoðunar. Þetta flýtir verulega fyrir litstillingu og gerir vinnuna mun auðveldari fyrir prentara.
Litaborðalesara er hér komið fyrir inni í prentvélinni. Mælirinn gengur stanslaust frá hægri til vinstri í takt við prentvélina, les og sendir sífellt upplýsingar til InkZone LOOP hugbúnaðarins sem sér um að uppfæra litagjöfina - sjá hér ofan.
Prentari þarf hér ekki að hafa fyrir að taka út arkir og mæla þær á borðinu hjá sér, heldur getur hann einbeitt sér að því að skoða prentunina og að gera næsta form kláran.
InkZone INLINE er fáanlegt bæði fyrir hefðbundnar offset arkavélar s.s. Heidelberg Speedmaster eða Man Roland en einnig fyrir Web/strengprentvélar. Að auki er vert að skoða:
InkZone TVI: Þessi hugbúnaður sækir upplýsingar um mælingar frá IZ MOVE, skoðar punktastækkunina og ef hún er ekki innan marka getur prentari uppfært prentkúrvuna í verkflæðinu til að færa prentunina eins nálægt viðkomandi staðli og mögulegt er.
Þetta er hjálplegt í offsetprentun þar sem blanket slitna og ýmsir þættir geta haft áhrif á punktastækkunina.
InkZone Report: Til að taka út skýrslur sem sýna hve nálægt ISO staðli - eða viðmiðunarstaðli sem valinn var, verkefni fyrir verkefni/form fyrir form. Afar gagnlegt tól fyrir framleiðslu og gæðastjóra til að fylgjast með framleiðslunni, fyrir prentara til að fylgjast með prentvélinni sinni - og fyrir viðskiptavini sem þarna geta fengið sönnun á því hve framarlega viðkomandi prentsmiðja er tæknilega - önnur góð og gild ástæða til að halda áfram viðskiptum. Hægt er að setja InkZone Report upp á server með
aðgengi í gegnum venjulega vefvafra. InkZone og ISO 12647 prentstaðallinn Ef prentsmiðjan þín gefur sig út fyrir að prenta skv. ISO 12647 staðlinum - sbr. t.d. skv. Fogra 39, Fogra 47, Fogra 51 eða Fogra 52 eða skv. G7 staðlinum, þá er InkZone kerfið með Techkon SpectroJet, Spectrodrive eða InkZone INLINE alveg gráupplagt til að tryggja að sú sé alltaf raunin. Mjög algengt dæmi: Ef pappírinn sem búið er að velja er óhúðaður en hugsanlega eilítið bláleitari en ISO staðallinn mælir fyrir þá er í raun afar lítið hægt að gera og myndir verða óhjákvæmilega eilítið bláleitari. Viðskiptavinur er meðvitaður um þetta, velur þennan pappír fyrir verkefnið sitt og samþykkir að það sé síðan prentað skv. ISO 12647-2, m.v. pappírstýpu # 4. Prófíll fyrir hönnun, forvinnslu og útkeyrslu ætti þá að vera viðeigandi ICC prófíll (sbr. PSO Uncoated ISO12647 prófíllinn frá ECI). Æskilegt er að skrá þessar upplýsingar í
verklýsingu til prentara - þ.e. "Pappírstýpa 4, ISO". EF viðkomandi pappír reyndist ekki vera standard ISO 12647 samhæfður, þá er auðvitað leikur einn að setja inn þau density gildi sem viðkomandi pappírsframleiðandi mælti með og vista síðan þann pappírsprófíl inn á InkZone kerfið í samráði við viðskiptavin. Hér er að sjálfsögðu jafn nauðsynleg að notaður sé útkeyrsluprófíll sem viðkomandi pappírsframleiðandi mælir með bæði við vinnslu verksins og útkeyrslu á plötu. Gott dæmi um slíka sérhæfða útkeyrsluprófíla og custom density er fyrir Munken pappír sem flestir prentarar þekkja vel. Ísland í dag, prentmarkaðurinn, aukin samkeppni, meiri kröfur Það er sannarlega ónotaleg tilfinning fyrir prentara að vita ekki nákvæmlega hvaða density er rétt, sérstaklega ef um er að ræða ný verkefni sem verða að vera 100% eða endurprentanir á verkefnum sem voru prentuð í öðrum smiðjum fyrir 2 árum síðan. Kröfur um prentun skv. staðli (s.s. ISO 12647)
verða sífellt algengari og þar af leiðandi verður sífellt erfiðara að
réttlæta að í raun og veru sé ekki vitað hvort viðkomandi verkefni var
prentað skv. staðli - eða skv. smekk viðkomandi prentara - eða að þurfa
að viðurkenna að prentrönnið var allt upp og ofan og sitt á hvað vegna
þess að notaður var handmælir í stað litaborðalesara. InkZone dregur úr álagi og streitu prentara. Vinnan verður þægilegri þ.e. nú getur prentari einfaldlega valið verkefnið og hlaðið því áhyggjulaust inn á prentvélina á örfáum sekúndum og prentað það síðan vitandi að density er allt eins og það á að vera frá fyrstu örk til þeirrar síðustu. InkZone eykur gæði framleiðslunnar og aukin gæði eru líkleg til að draga að fleiri viðskiptavini. InkZone sparar prentsmiðjum milljónir í formi pappírssparnaðar og tímasparnaðar/aukinnar framleiðni. Við bjóðum upp á allt að 6 mánaða greiðsludreifingu á InkZone sem gerir prentsmiðjum í flestum tilfellum kleift að nýta þann sparnað sem þær ná með notkun kerfisins til að greiða af því (almennt er uppgreiðslutími fyrir forstillingu c.a. 3 mánuðir og fyrir komplett kerfi - forstillingu og closed loop kerfi með mæli 6-9 mánuðir. Nánari upplýsingar um InkZone lausnirnar er að finna hér.
|
|
I&I Heildsala,
Spóahólar 4, 111 Reykjavik, Sími: +354 896 9790
Netfang:
ingi@spot-nordic.com